20.02.1935
Neðri deild: 10. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (478)

5. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. um bráðabirgðabreytingu nokkurra l. er samhljóða l. um sama efni, sem samþ. voru á síðasta Alþ. Það þykir ekki fært vegna fjárhagsörðugleika ríkissjóðs að leggja annað til en að þessi bráðabirgðabreyting verði enn gerð á nokkrum l., til þess að létta á ríkissjóði. Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en vil aðeins óska þess, að málinu verði vísað til fjhn. að aflokinni þessari umr.