25.03.1935
Sameinað þing: 6. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í D-deild Alþingistíðinda. (4851)

24. mál, talskeytastöðvar í fiskiskip

Jón Auðunn Jónsson:

Með tilliti til hins bága fjárhagsástands ríkissjóðs og þess, sem gert hefir verið í þessu máli, þá get ég sætt mig við þessa afgreiðslu málsins, enda þótt þörfin sé brýn, og það fyrir miklu meira fé en hér er um að ræða.