04.04.1935
Sameinað þing: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í D-deild Alþingistíðinda. (4935)

122. mál, þýsk ríkismörk

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ríkisstj. mun taka fullt tillit til þeirra óska, sem hér hafa komið fram, og mun gera það, sem í hennar valdi stendur, til að tryggja þessi viðskipti. En með tilliti til yfirlýsingar form. Alþfl. og óskar hæstv. fjmrh. vil ég mælast til þess, að hæstv. forseti taki málið út af dagskrá og fresti umr.