19.02.1935
Efri deild: 7. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í B-deild Alþingistíðinda. (515)
2. mál, gjöld 1936 með viðauka
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfir.]:
Ég hygg, að hv. þdm. muni kannast við flest ákvæði þessa frv. Í því eru dregin saman í eitt ákvæði, sem áður hafa verið í nokkrum l. um að innheimta ýms gjöld með viðauka, þ. e. heimild til að leggja á þessa viðauka.
Fært þykir ekki að leggja til, að felld verði niður heimildin til þess að leggja á þessa viðauka, og mun ástæðan til þess koma fram, þegar farið verður að ræða fjárlagfrv. fyrir árið 1936, sem útbýtt hefir verið í þinginu og hv. þm. hafa þegar kynnt sér. Sjá hv. þm., að í því frv. er gert ráð fyrir, að viðaukarnir haldist, og ástæðan fyrir því liggur fyrir í fjárlagafrv. sjálfu.
Það þótti rétt að draga saman þessi ákvæði, sem áður var að finna í ýmsum l., og koma þeim sem mest í eitt, eins og hér hefir verið gert, til þess að menn gætu fengið betra yfirlit yfir þessi l. um álagningu viðaukagjalds þessa, sem gilt hafa og hér með er lagt til, að gilda skuli fyrir árið 1936.
Ætla ég svo ekki að fara lengra út í þetta mál að sinni, en legg til, að frv. verði vísað til fjhn. að umr. lokinni.