14.12.1935
Neðri deild: 99. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (665)

7. mál, eftirlit með matvælum

Garðar Þorsteinsson:

Ég hefi að sinni engu við það að bæta, sem hv. 1. landsk. hefir hér sagt. Ég vil þó geta þess, að á þeim fundi, sem allshn. tók fyrir þetta mál, var einn nm., hv. 3. þm. Reykv., ekki viðstaddur. Hefir hann því athugað þetta mál sérstaklega, og höfum við eftir þá athugun ákveðið að flytja nokkrar brtt. við frv. við 3. umr. Sé ég ekki ástæðu til að fara út í þau atriði að þessu sinni, en vildi aðeins geta þessara væntanlegu brtt.