15.02.1935
Neðri deild: 3. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í B-deild Alþingistíðinda. (682)

8. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Héðinn Valdimarsson:

Ég er hér með skrifl. brtt., þess, efnis, að 2. gr. frv. falli niður. Ástæðan fyrir því, að ég flyt brtt. þessa, er sú, að það er talið óheppilegt vegna lántökunnar, ef nokkuð annað felst í frv. en lántökuheimildin sjálf. Við alþýðuflokksmenn munum svo flytja frv. um að fella úr gildi lögin frá 9. jan. þ. á., um lántöku fyrir ríkissjóð.