27.02.1935
Efri deild: 13. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (747)

23. mál, erfðir og skipti á dánarbúi

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég get látið nægja að vísa til grg. frv., þar sem af henni verður ljóst, hvernig frv. er til komið. Frv. varð svo síðbúið, að ekki vannst tími til að senda það til konungs til staðfestingar; þess vegna mæltist ég til þess við allshn., að hún flytti það. Ég veit ekki, hvort ástæða er til að vísa frv. til nefndar nú. Þar sem það er flutt af nefnd. Legg ég því til, að því verði vísað til 2. umr. með tilmælum um, að allshn. athugi það á milli funda, og jafnframt að hún hraði því sem unnt er.