21.03.1935
Efri deild: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (809)
42. mál, póstlög
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Það getur verið, að það sé rétt, sem hv. 1. þm. Skagf. nú sagði, að þessar 1020 þús. setja landið ekki á höfuðið, en það er vitanlegt, að ef margar slíkar upphæðir koma saman, þá getur það haft veruleg áhrif. Ég man það, að sessunautur hans, hv. 1. þm. Reykv., var að tala um það hér um daginn, að þótt ekki munaði mikið um hverjar 10000 kr., þá dragi það sig samt saman, og þar er ég honum alveg sammála. Þó að ekki muni mikið um 10000 kr., þá draga margar slíkar upphæðir sig samt svo saman, að það getur haft mikla þýðingu.
Ég er þakklátur hv. allshn., ef hún ætlar að gera ráðstafanir til að afla tekna til að vega upp á móti þessu tapi, en ég vil þá einnig beina því til n., hvort hún vilji ekki fallast á þá uppástungu hv. 1. þm. N.-M. að bera fram till. um, að þessi l. komi ekki til framkvæmda fyrr en á árinu 1936, sem að þau hafi engin áhrif á fjárl. þessa árs.