30.03.1935
Efri deild: 38. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (952)

86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Það hefir aldrei verið neitt launungarmál, að búinn var veittur þessi réttur, og það er líka opinbert mál, að rétturinn var tekinn af því aftur. En hv. þm. lýsti fyrir nokkrum dögum, að ég hefði veitt Korpúlfsstöðum sérstakan rétt. En það hefir hann ekki getað upplýst, því að þann sérrétt hefi ég aldrei veitt.