18.04.1936
Neðri deild: 51. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (1142)

63. mál, sveitarstjórnarkosningar

Garðar Þorsteinsson:

Ég vil leyfa mér að benda á, að þar sem ekki er hlutfallskosning, er ekki hægt að kjósa á tveim stöðum vegna varamannanna, og ég sé því ekki ástæðu til að breyta þessu.