07.03.1936
Efri deild: 18. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (1167)

64. mál, ólöglegar fiskveiðar

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Meiri hl. allshn. flytur frv. þetta, sem er staðfesting á bráðabirgðalögum, gefnum út 14. jan. síðastl. En þótt það sé aðeins meiri hl., sem að frv. stendur, má samt ekki skilja það svo, að minni hl. hafi verið andvígur frv.

Vegna þess að ég geri ráð fyrir, að ef til vill komi fram brtt. við frv., legg ég til, að því verði vísað til allshn. að lokinni umr.