28.03.1936
Neðri deild: 36. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (1236)

92. mál, forgangsréttur til embætta

*Stefán Jóh. Stefánsson:

Jafnvel þó að að mínu áliti sé erfitt að leggja þann skilning í gr. frv., sem hv. þm. V.-Ísf. gat um, þá munu þessar umr., sem fram hafa farið um frv., ef til vill hjálpa til þess, að því verði slegið föstu, að þannig beri að skilja frvgr. Og að fenginni yfirlýsingu hv. þm. V.-Ísf. sé ég fyrir mitt leyti ekki ástæðu til þess að óska eftir frekari breyt. á frv.