28.04.1936
Neðri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 981 í B-deild Alþingistíðinda. (1495)

99. mál, jarðakaup ríkisins

Páll Zóphóníasson:

Þar sem þessi brtt. gerir einungis ráð fyrir, að þeim mönnum sé veitt aðstoð til þess að standa undir lánum sínum, sem lán hafa fengið í kreppulánasjóði, og þar sem t. d. í Borgarfjarðarsýslu eru 38 menn, sem ekki geta risið undir lánum sínum, og ekki er nema liðugur helmingurinn þeirra, sem eiga lán í kreppulánasjóði — en hinir eiga að deyja drottni sínum — þá segi ég nei.