17.03.1936
Neðri deild: 26. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 996 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)

73. mál, fræðsla barna

Forseti (JörB):

Það er misskilningur hjá hv. þm. V.-Húnv., að hér eigi að viðhafa eitthvað sérstaklega óþinglega aðferð. Mál þetta er flutt hér í d. af meiri hl. menntmn., og sá meiri hl. hefir lýst því yfir, að n. öll muni taka málið til ýtarlegrar yfirvegunar á milli umr. Hér er því um að ræða mjög þinglega aðferð. Annars vil ég benda hv. þm. á, að það er ekki venja að vísa málum til n., sem flutt eru af einhverjum nefndarhlutum.