19.02.1936
Sameinað þing: 3. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (16)

Kosning fastanefnda

Hannes Jónsson:

Ber að skoða það svo, sem hæstv. forsrh. sagði, að það sé talað f. h. beggja stjórnarflokkanna? (Forsrh.: Aðeins f. h. Framsfl.) Þá óska ég eftir að heyra, hvað sósíalistar leggja til þessa máls. Mér finnst það óviðfelldið, að n. sé ekki strax þegar í byrjun fullskipuð, og þetta er ekki svo stórt mál, að ekki sé hægt að ganga frá því án mikillar umhugsunar. Ég man það, að þegar slík ákvörðun sem þessi var tekin síðast, þá tók það ekki langan tíma.