08.05.1936
Sameinað þing: 20. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í B-deild Alþingistíðinda. (165)

1. mál, fjárlög 1937

Jakob Möller:

Ég skil ekki, hver er meiningin með þessari till. Hér var áðan í sambandi við 16. gr. borin undir atkv. till. frá hv. 6. þm. Reykv. um fjárveitingu til iðnsambandsins í þessu skyni. Nú er þessi till. borin fram sem heimild í 22. gr., og skilst mér, að það eigi að gilda í eitt skipti fyrir öll, og get því ekki greitt henni atkv.