02.05.1936
Neðri deild: 61. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (1674)

126. mál, sala Hamra við Akureyri

*Guðbrandur Ísberg:

Ég vil taka það fram, að ég tek það sem sjálfsagðan hlut, að eins og till. liggur fyrir, þá verði Akureyrarbær að fá fullt verð fyrir það land, sem gert er ráð fyrir, að hann láti af hendi. Bærinn kaupir Hamra nú fullu verði, ef til kemur, og því verður hann að fá gangverð fyrir það land, sem honum er ætlað að láta af hendi. Ég sá ekki ástæðu til að taka þetta fram í upphafi vegna þess, að þar sem ekkert er tekið fram um verð í till., er ekki hægt að taka þetta öðruvísi.