25.04.1936
Efri deild: 56. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1102 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)

35. mál, stýrimannaskólinn

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að hann tæki á dagskrá næsta fundar frv. til l. um stýrimannaskólann í Rvík. Það hefir legið hjá menntmn. nokkuð lengi, og mér þykir sýnt, að það fái ekki frekari athugun hjá nefndinni.