07.05.1936
Neðri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1108 í B-deild Alþingistíðinda. (1709)

35. mál, stýrimannaskólinn

*Garðar Þorsteinsson:

Ég get greitt atkv. með till. hv. þm. N.-Þ. En ég hefi borið fram till. á þskj. 580, sem fer í sömu átt, en er staðbundnari, þar sem farið er fram á heimild til þess að halda þessi námskeið einnig á Siglufirði. Mér virðist sá staður eiga fullan rétt á því sökum fólksfjölda og aðstöðu til atvinnulífsins, a. mk. ekki síður en Akureyri og Norðfjörður. Vænti ég því, að hv. þm. taki till. vel.