06.05.1936
Neðri deild: 64. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (1927)

134. mál, nýbýli og samvinnubyggðir

Jón Pálmason:

Ég hefi ásamt hv. þm. Borgf. borið fram brtt. við þetta frv., en af því að fundartími er nú að verða búinn og af því að þessi brtt. kemur ekki til atkv. fyrr en við 2. umr., get ég látið mér nægja að bíða með að mæla fyrir henni þangað til. Landbn. er öll samþ. þessu frv., og þegar það kemur til 2. umr., gefst væntanlega tími til að þrátta um þessa brtt. okkar hv. þm. Borgf.