21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (2002)

34. mál, atvinna við siglingar

Jakob Möller:

Liggur þessu máli svo mjög á, að það þurfi nú að taka það fyrir með afbrigðum? Ég hafði ætlað mér að koma með brtt. um þetta mál, og ég vil því mælast til þess, að það sé ekki tekið fyrir á þessum fundi. Ég skal hafa brtt. til fyrir næsta fund, en ég mun greiða atkv. á móti afbrigðum, ef á að taka málið fyrir núna.