21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (2006)

34. mál, atvinna við siglingar

Frsm. (Páll Þorbjörnsson):

Ég skal ekki gera þetta að neinu kappsmáli, en ég sé ekki, að neitt mæli með því að ljúkist ekki 2. umr. málsins núna. Ég geri ráð fyrir, að það verði ekki tekið til 3. umr. fyrr en skólamálið hefir verið tekið til meðferðar í Ed., og það mun því gefast góður tími til þess að koma með brtt. við 3. umr. En ég hygg, að ef menn eru ekki tilbúnir með brtt. núna, þá verði menn það tæplega heldur á morgun.