30.04.1936
Neðri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1413 í B-deild Alþingistíðinda. (2014)

34. mál, atvinna við siglingar

Emil Jónsson:

Þótt mér skildist á hv. frsm., að öðruvísi stæði á um brtt. okkar hv. 3. þm. Reykv. en brtt. sjútvnm. tveggja, og ekkert væri talað um „velviljaða athugun“ í sambandi við hana, mun ég þó ásamt meðflm. mínum taka brtt. okkar aftur til 3. umr. í þeirri von, að n. athugi hana og lagfæri frv. eftir henni.