09.05.1936
Sameinað þing: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)

Afgreiðsla þingmála

Thor Thors:

Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. forseta að því, hvort hann ætli sér að leggjast á 5. málið á dagskránni (till. um mþn. til undirbúnings löggjafar um vinnudeilur), sem þarf tvær umr., eða hvort hv. þm. eiga að fá að láta í ljós álit sitt á því. Það er búið að liggja mánuðum saman fyrir þinginu. Ég vil líka minna á, að hæstv. forsrh. tók vel það, að málið fengi framgang á þinginu.