09.05.1936
Sameinað þing: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1449 í B-deild Alþingistíðinda. (2088)

Afgreiðsla þingmála

Eiríkur Einarsson:

Það eru fleiri, sem eiga till. á dagskránni og þurfa að bera fram svipaðar óskir, og undir þetta vildi ég taka mína till., sem er 10. málið á dagskránni (till. um íhlutun sveitarstjórna við stofnun nýbýla og samvinnubyggða). Ég vildi spyrja hæstv. forseta að því, hver fyrirætlun hans er með dagskrána og hvort eigi að slíta fundi kl. 3 eða hvort það muni verða eftirmiðdagsfundur til þess að ræða dagskráa áfram.