18.03.1936
Sameinað þing: 6. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (2118)

Utanríkismálanefnd

Forseti (JBald):

Mér er kunnugt um, að stjórnarflokkarnir hafa ekki gert endanlega ákvörðun um þetta. Og þess vegna verður ekki hægt að taka þetta til atkvgr. nú. (HannJ: Hvenær mundi það verða hægt?). Forseti ræður ekki einn um það, en ég get vikið því til flokkanna, að þeir hraði ákvörðun um þetta.