13.03.1936
Neðri deild: 23. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í C-deild Alþingistíðinda. (2177)
60. mál, sauðfjárbaðanir
Frsm. meiri hl. (Jón Pálmason):
Þetta frv. lá einnig fyrir síðasta þingi og var tekin afstaða til þess í landbn., sem einróma lagði til, að það yrði afgr. með rökst. dagskrá sem óþörf löggjöf. Nú var því fyrir nokkrum dögum aftur vísað til landbn., og meiri hl. hennar, eða þeir fjórir menn, sem skrifað hafa undir nál. á þskj. 128, hefir orðið sammála um að leggja til, að málið yrði afgr. einnig nú með rökst. dagskrá, og vísað til þess, að hér eru gildandi l. um útrýmingu fjárkláða og þrifabaðanir og því eigi þörf nýrrar löggjafar um þetta efni. Eg sé ekki ástæðu til, eins og sakir standa, að fara mörgum orðum um þetta mál, a. m. k. ekki fyrr en frsm. minni hl. hefir talað og gert grein fyrir þeim ástæðum, sem hann telur til þess liggja, að þetta frv. eigi að ná fram að ganga. Hv. þm. sjá, að þeir menn, sem voru í landbn. á síðasta þingi, hafa ekki haggað skoðun sinni að því er þetta mál snertir, og ég vænti, að meiri hl. hv. d. hafi ekki heldur haggað sinni skoðun.