30.04.1936
Efri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í C-deild Alþingistíðinda. (2214)

60. mál, sauðfjárbaðanir

*Jónas Jónsson:

Ég vildi fara fram á, að hæstv. forseti tæki 2 mál út af dagskrá, bæði þetta mál og 8. málið (frv. um fræðslu barna). — Vil ég nota tækifærið til að segja, að n. er að vinna að því, en hefir ekki haft tíma til að ganga frá því. Hinsvegar telur n. hér um svo mikilsvert mál að ræða, að óforsvaranlegt sé að afgr. það fyrr en álit kemur frá n., sem verður mjög ýtarlegt. Um baðanirnar er það að sama að segja, að þær eru stórmál.