28.04.1936
Neðri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í C-deild Alþingistíðinda. (2271)
128. mál, alþýðutryggingar
Flm. (Thor Thors):
l. um alþýðutryggingar eru mjög skýr að því er ellistyrkinn snertir, því að í 51. gr. l. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Greiðslur ellilífeyris hefjast, þegar hinn tryggði verður 67 ára.“ Frá þessu verður engin undantekning gerð. Hitt getur vel verið rétt, sem hv. 1. landsk. sagði, að koma megi einhverjum af þessum gamalmennum undir 52. gr. l., þar sem ræðir um örorkulífeyri, en slíkt er algert framkvæmdaatriði og engin vissa fyrir þetta gamla fólk, að það fái að njóta þess réttar, sem ef til vill mætti finna í þessari gr. Ef hv. 1. landsk. er mér sammála, að það sé réttlætismál, að þetta gamla fólk njóti a. m. k. ekki minni réttar en það gerði samkv. eldri löggjöf, þá fæ ég ekki betur séð en hann geti verið mér sammála um, að rétt sé, að löggjafinn lýsi því yfir, hver sé vilji hans í þessu efni. Framkvæmdavaldið þarf þá ekki að vera í vafa um hvern mann, sem þarf að sækja rétt sinn undir það. Af þessum ástæðum tel ég rétt og nauðsynlegt, að þetta mál nái fram að ganga.