28.04.1936
Neðri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í C-deild Alþingistíðinda. (2275)

128. mál, alþýðutryggingar

Flm. (Thor Thors):

Það, sem hér er deilt um, er það, að ég held því fram, að réttur þessara gamalmenna verði öruggur, ef frv. nær fram að ganga, en ef það nái ekki fram að ganga, þá sé undir hælinn lagt, hvort þetta fólk fær þennan örorkulífeyri. Af þessum ástæðum tel ég rétt, að frv. nái fram að ganga.