24.02.1936
Neðri deild: 7. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (2321)

14. mál, samvinnufélög

Forseti (JörB):

Deildin verður að sjálfsögðu að skera úr því, hvort á að fresta umr. og vísa málinu til n., því að eins og kunnugt er, hafa þm. leyfi til að vísa máli til n. á hvaða stigi sem er. Hinsvegar vil ég beina til hv. þm., ef svo kynni að fara, að málinu yrði frestað og því vísað til n., hvort þeir vildu þá ekki geyma frekari umr. um málið sjálft.