24.02.1936
Neðri deild: 7. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í C-deild Alþingistíðinda. (2347)
23. mál, eignarnámsheimild á Reykhólum
*Bergur Jónsson:
Hv. 9. landsk. segir, að ég hafi blásið mig upp og deilt á hann út af frv. hans, en komið svo með alveg samskonar frv. Ég verð nú að játa, að ég hefi ekki hingað til haft mikið álit á skýrleika þessa hv. þm., en ekki eykst það við þetta. Ég las uppkast að frv. mínu. þar sem gert er að skilyrði fyrir kaupum á jörðinni eða eignarnámi, að áður fari fram rannsókn á því, hvort nauðsyn beri til, að þessi jörð verði almenningseign. Ég veit, að enginn annar þm. er svo óskýr, að hann sjái ekki, hver reginmunur hér er á. Í frv. hans er beinlínis skipað svo fyrir, að taka skuli af erfingjunum jörðina, rannsóknarlaust og án nokkurrar réttlætingar. Væri hægt að fara sýslu úr sýslu og taka eignarnámi kostajarðir, ef þetta frv. næði samþykki.
Hv. þm. hélt því fram, að ég hefði skammað erfingja Þóreyjar Pálsdóttur fyrir meðferð þeirra á jörðinni. Þetta er líklega sagt af ókunnugleika hv. þm. En hann ætti þó að vita — því að ekki er svo langt síðan hún dó —, að það voru ekki erfingjarnir, sem leigðu jörðina, heldur umboðsmaður hennar. Hér er um að ræða misskilning hv. þm., eða þá vísvitandi ranghermi, og þykir mér það reyndar engu ólíklegra. — Að öðru leyti þarf ég ekki að svara honum. Hann gekk yfirleitt á snið við málið. En þar sem hann telur frv. mitt shlj. sínu frv., tel ég víst, að hann muni fylgja því fram. Þó að ég hafi annars ekki miklar mætur á honum, get ég þó þegið atkv. hans.
Að lokum endurtek ég þá till. mína, að frv. verði vísað til allshn.