24.02.1936
Neðri deild: 7. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í C-deild Alþingistíðinda. (2350)

24. mál, útgerð ríkis og bæja

Flm. (Emil Jónsson):

Ég get verið stuttorður um þetta mál. Það lá fyrir á síðasta þingi og varð þá ekki útrætt. Var því vísað til sjútvn., og kom ekki nál. nema frá nokkrum hluta n. Við flm. teljum, að ástæður til að flytja frv. séu óbreyttar frá því í fyrra. Frv. var rætt allýtarlega við 1. umr. í fyrra, og mun ég því ekki að þessu sinni ræða um ástæður þær, sem færa má fram með frv. eða móti. Legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. og sjútvn.