24.04.1936
Neðri deild: 55. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í C-deild Alþingistíðinda. (2479)

54. mál, vinnudeilur

Thor Thors:

Ég vil leyfa mér að vekja athygli hæstv. forseta á því, að mjög snemma á þessu þingi var borið fram af mér og hv. 8. landsk. frv. til 1. um vinnudeilur. Þetta frv. var tekið til meðferðar í allshn., sem hæstv. forseti á sæti í m. a. Það hefir komið fram nál. frá öðrum minni hl. n., sem er hv. 8. landsk. og ég, og það hefir einnig komið fram nál. frá hæstv. forseta, sem myndar sérstakan minni hl. innan n. Hinsvegar hefir ekkert nál. komið frá hv. 2. þm. Reykv. og hv. l. landsk., enda þótt þeir hefðu þau ummæli, að þeir mundu bráðlega skila nál.