14.03.1936
Neðri deild: 24. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í C-deild Alþingistíðinda. (2491)
55. mál, laun hreppstjóra og aukatekjur m. fl.
Frsm. minni hl. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti! Ég hefi ekki getað orðið sammála hv. meðnm. mínum um þetta mál. Þeir hafa, eins og fram kom hjá hv. frsm., lagt til, að laun hreppstjóranna yrðu hækkuð. Ég skal fúsleg, viðurkenna það, að laun hreppstjóranna eru ekki há, en þegar rætt er um hækkun á launum einhverrar stéttar, þá tel ég ekki nóg að líta eingöngu á það, hvernig launin eru, heldur líka á laun annara og getu landsins til að borga. Að því er hreppstjórana snertir er það svo, að starf þeirra er mjög misjafnt; margir hreppstjórar í sveitahreppum hafa tiltölulega mjög lítið starf, og þarf því ekki að borga það hátt. Hitt er aftur á móti satt, að öðru máli gegnir um suma aðra hreppstjóra, sérstaklega í sjávarþorpunum, sem verða að framkvæma töluvert, meira og minna, af innheimtustörfum og öðrum störfum, sem sýslumenn, er lengra burtu búa, eiga að réttu lagi að leysa af hendi, en láta hreppstjórana framkvæma fyrir sig í sínu umboði. Ég geri ráð fyrir, að hreppstjórarnir fái þetta yfirleitt borgað að einhverju leyti af viðkomandi sýslumönnum, en hinsvegar skal ég viðurkenna, að töluverður hluti af hreppstjórum landsins fær, að mínu áliti, of lág laun, ef litið er á þá eina út af fyrir sig. En ef hinsvegar er litið á getu ríkissjóðs til þess að greiða mönnum laun og það, sem allur almenningur í landinu þarf að hafa sér til lífsframfæris, þá finnst mér ekki rétt á þessum tímum að ganga inn á braut að hækka, laun hreppstjóranna, og það því fremur sem öllum er það ljóst, að þeir erfiðleikar, sem þjóðin á nú við að stríða, og þeir, sem eru framundan, geta vel borið í skauti sínu meiri og minni breytingar á verðgildi peninga okkar. Þess vegna tel ég ekki tímabært á þessu stigi málsins að hækka laun hreppstjóranna og legg því til, að frv. verði fellt.