17.02.1936
Efri deild: 2. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (25)

Kosning fastanefnda

Þorsteinn Briem:

Ég tók það greinilega fram áðan, að ég færi ekki fram á það við neinn að rýma sæti úr nefnd fyrir mér og mínum flokki. En þrátt fyrir þau andmæli, sem fram hafa komið frá öðrum stjórnarflokknum gegn till. minni, vil ég endurtaka þau tilmæli mín til hæstv. forseta, að hann taki till. mína til greina og leiti afbrigða frá þingsköpunum.