05.03.1936
Neðri deild: 16. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í C-deild Alþingistíðinda. (2510)
58. mál, skipun lögsagnarumdæma
*Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Þetta frv. var flutt á síðasta þingi og er nú aftur flutt í sama búningi. Sú n., sem hafði það til meðferðar, gat ekki fallizt á það nema að mjög litlu leyti. Ég geri ráð fyrir, að það komi fram brtt. við það, en sé ekki ástæðu til að fjölyrða um efni þess, og legg til, að því verði, að þessari umr. lokinni, vísað til 2. umr. og launanm.