18.02.1936
Neðri deild: 3. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í B-deild Alþingistíðinda. (254)

2. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Frv. þetta er um staðfestingu á bráðabirgðalögum um breyt. á tvennum lögum, er samþ. voru á síðasta þingi, önnur á fyrri hluta þingsins, en hin á síðari hluta þess. Ég sé ekki ástæðu til við þessa umr. að fara út í einstaka liði frv., því efni þess er kunnugt frá umr. frá síðasta þingi. Ég vil aðeins taka það fram, að ekki er sýnileg ástæða til að láta lög þessi niður falla fyrir árið 1937. — Vil ég svo leyfa mér að óska þess, að frv. verði að lokinni umr. vísað til 2. umr.