09.03.1936
Neðri deild: 19. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í C-deild Alþingistíðinda. (2554)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Flm. (Ólafur Thors):

Ég vil aðeins benda á, að sé það rétt, sem hæstv. fjmrh. sagði, þá samrýmist það ekki því, sem hv. 1. þm. Rang. sagði; hann sagði, að ekki hafi getað verið um útboð á láninu að ræða, beinlínis vegna þess, að framhjá olíufélögunum hafi með engu móti verið hægt að komast. Þetta var þungamiðja ræðu hans, og einmitt á þessu byggist sú tilraun, sem hann gerði til að koma fram vörnum í málinu.