03.04.1936
Neðri deild: 41. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í C-deild Alþingistíðinda. (2580)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Vegna þess að ég býst við, að umr. þessar dragist nokkuð, en ég verð að mæta á fundi fiskeigenda í S. Í. F., vildi ég mælast til þess, að brtt. mín á þskj. 271, er snertir þetta mál, megi bíða til 3. umr., þar sem ég tel heppilegra að mæla fyrir henni enn nokkur orð.