17.02.1936
Efri deild: 2. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (26)

Kosning fastanefnda

Magnús Guðmundsson:

Ég geri ekki ráð fyrir, að Sjálfstfl. hafi neitt við það að athuga, þó að fjölgað verði mönnum í þeim tveimur nefndum, sem talað hefir verið um, samkv. ósk hv. 10. landsk. En hitt kemur vitanlega ekki til mála, að Sjálfstfl. rými úr sínum sætum í þessum nefndum, enda hefir ekki verið farið fram á það. Hv. þm. S.-Þ. skýrði ekki rétt frá því. (JJ: Það hefði þó átt að vera svo).