21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í C-deild Alþingistíðinda. (2613)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Ég þakka hæstv. ráðh., að hann hefir staðfest, að ég hafi heyrt rétt, og nú vænti ég þess, að hæstv. ráðh. sýni þann drengskap að láta blað sitt bera til baka þau ummæli um slúðurburð, sem það notaði um mig út af fyrirspurn, sem kom frá mér um þetta atriði.