21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í C-deild Alþingistíðinda. (2615)

68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Ég hlýt að álíta, að það sé á, misskilningi byggt hjá hæstv. ráðh., ef hann álítur ummæli blaðsins réttmæt. Það, sem ég sagði, var ekki annað en að ég spurði, hvort það væri rétt, að S. Í. S. hefði sérréttindi um sinn gjaldeyri, og hæstv. ráðh. hefir sannað, að svo er. (Fjmrh.: Það hefir alls engin sérréttindi).