24.04.1936
Efri deild: 55. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í B-deild Alþingistíðinda. (283)

2. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Ég hefi enga ástæðu til þess að svara þeim hv. þm., sem talað hafa, þar sem þeir hafa báðir lýst yfir því, að þeir muni geyma brtt. sínar til 3. umr. En ég álít, að hér þurfi engar brtt. að bera fram, því að hæstv. forseti mun bera hvern lið sérstaklega undir atkv., ef um það er beðið.