08.05.1936
Neðri deild: 69. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í C-deild Alþingistíðinda. (2859)

30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

1) HannJ:

Það er nú búið að fella úr frv. öll þau ákvæði, sem gátu komið sveitarfélögunum að gagni og hefir sennilega frá öndverðu verið til þess ætlast. Einn hv. þm. sagði hér í spaugi, að nú væri frv. orðið ganslaust fyrir kaupstaðina, og yrði að gera það eins gagnvart sveitunum, til þess að bjarga því. Ég vil ekki taka þátt í þessum leik og greiði því ekki atkv.