06.04.1936
Efri deild: 46. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í C-deild Alþingistíðinda. (2893)

43. mál, berklavarnir

*Jón Auðunn Jónsson:

Ég vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að hann vildi hlutast til um það, að frv. frá mér og hv. þm. Dal. um berklavarnir kæmi sem fyrst á dagskrá. Frv. þetta var afgr. til fjhn. 27. febr., og hefir minni hl. skilað áliti fyrir nokkru, en álit meiri hl. er ókomið ennþá. Vildi ég mælast til þess, að forseti hlutaðist til um, að meiri hl. skili áliti sem fyrst, en geti það ekki orðið, þá verði málið tekið bráðlega á dagskrá engu að síður.