06.04.1936
Efri deild: 46. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í C-deild Alþingistíðinda. (2894)

43. mál, berklavarnir

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Frv. frá mér um framfærslu sjúkra manna liggur einnig hjá nefnd, og hefir ekki komið nál. um það heldur. Ég lét það í ljós við 1. umr. málsins, að ég teldi æskilegt, að mál þessi yrðu samferða, því að í frv. um ríkisframfærslu sjúkra manna er lagt til, að berklavarnagjaldið falli niður, svo að hitt frv. er úr sögunni, ef það frv. er samþ.