09.05.1936
Sameinað þing: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í D-deild Alþingistíðinda. (3047)
87. mál, landhelgisgæzla
*Pétur Ottesen:
Það er rétt, sem hv. frsm. sagði, að í fjvn. var fullt samkomulag um afgreiðslu þessa máls. Og byggðist samkomulagið á því, að báðar þáltill., sem fyrir n. lágu, yrðu afgr. með þessum hætti, er fram kemur í brtt. n. Ég vil þó fara fram á það við hæstv. forseta, að hann leiti fyrst atkvæða um þessa brtt. n., og ef hún verður samþ., þá tökum við að sjálfsögðu till. okkar aftur, hv. þm. G.-.K og ég. Ég vildi aðeins, að þessu formi yrði fylgt og að brtt. yrði samþ. áður. Vænti ég, að hæstv. forseti geti hagað afgreiðslu málsins þannig.