26.03.1936
Efri deild: 34. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í B-deild Alþingistíðinda. (307)

5. mál, ríkisútgáfa námsbóka

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Þessar brtt. sem hér liggja fyrir, eru í samræmi við það, sem talað var um síðast, þegar málið var til umr., og get ég fallizt á þær báðar. Sú fyrri er nauðsynleg viðbót við 7. gr. frv., og ég verð að fallast á, að eðlilegt sé að heimta ekki námsbókagjöldin inn fyrr en útgáfan tekur til starfa, og get því mælt með báðum brtt.