31.03.1936
Sameinað þing: 9. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í D-deild Alþingistíðinda. (3187)

76. mál, landhelgisgæzla á Faxaflóa og Snæfellsnesi

Thor Thors:

Eins og hv. 4. þm. Reykv. hefir þegar drepið á, flyt ég hér brtt. þess efnis, að gæzlan nái einnig til Snæfellsness. Við Snæfellsnes eru einhver beztu fiskimið landsins, og mikil þörf á að verja þau fyrir ágangi togara. Væri auðvitað æskilegast að hafa sérstakan bát til gæzlu þarna, en þar sem ég býst við, að því fáist ekki framgengt eins og nú árar, ber ég fram þessa brtt., og vænti þess, að hún fái góðar viðtökur.